Ein fyrir alla og allir fyrir einn..

Gott kvöld allir fjær og nær.

Muniði eftir hinum klassa þáttum nýjustu tækni og vísindum? Þar fór Sigurður H Rikter (held ég að kauði heitir) á kostum með útvarpslegri röddu og skemmtilegri framkomu, sá gat brosað ha?

Að brosa kostar ekkert segir gott orðtak.. er það svo erfitt? Nei nefla ekki, tala nú ekki um þegar veðrið er líka svona ljómandi gott.. sólheimaglottið hverfur ekki af mínu fési. Er svo til mikils að ætlast þegar þú gengur inn í verslun, eða á aðra staði sem hafa upp á ýmsa þjónustu að bjóða. Að fá gott viðmót frá starfsfólkinu þar ? Sjálf starfa ég á stað þar sem það er sjálfsagt mál fyrir mig að vera kurteis og sýna gott viðmót við fólk.

Hins vegar..

Virðist það vera þannig háttað að þegar ég er í sem bestu skapi, kemur einhver kona/maður sem er búin/n að pirra sig á kallinum/kerlingunni heima og fúkkast og hreytir í mig öllum illum látum. Já það er nefla svo gott að fá útrás á starfsfólki hér og þar og losa reiðina á því.. þetta sama fólk ætlast til þess að ég sýni því góða framkomu á móti.

Ég prófaði í dag að koma fram við einn kúnnan eins og hann kom fram við mig. Það sem ég fékk til baka var góð afsökunarbeðni. Viðkomandi fattaði hvað hann hefði gert.

Ekki taka vandamálin með þér útum allt.. slepptu aðeins að hugsa og fúkkast í smástund og brostu við og við..

Komdu fram við aðra eins og aðrir koma fram við þig!


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hin sænska Jukka Svensen
Hin sænska Jukka Svensen
Ein með skoðun á öllu í heiminum geiminum..
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband